Monday, December 3, 2007

Lukkan næsta fórnarlamb!

En eins og Hilli sagði, ekkert vanmat takk. Mætum í leikinn í kvöld dýrvitlausir tökum öfluga upphitun að hætti Sigga.

Mæting klukkan 20.57.

Minni á að enn eiga þrír eftir að greiða fyrir búninga.

13 comments:

Anonymous said...

borga drengir
kv. Arnar

Anonymous said...

Fös. 14.des.2007 21.15 Kaplakriki FH - HR
sem sagt búið að setja leikdag þennan frestaða leik.

Anonymous said...

Þarf kannski orðið ekki að taka það fram lengur en ég kemst ekki í leikinn í kvöld meiðsla í hönd. Skrítið ég skelli hausnum í gólfið og meiði mig í hendinni.

Kv. Haukur

Anonymous said...

Ég heyrði að lukkumenn hafi verið í tjaldbúðum á Esjunni um helgina. Ferðinn var víst til að æfa í þynnu loftslagi. Hef þetta eftir mjög óáræðanlegum heimildum. Þeir mæta greinilega einbeittir og loftháðir til leiks. Treysti á að við keyrum nú samt yfir þá :)

Beggi said...

Það kemur ekki annað til greina en að afgreiða þessa pappakassa sannfærandi!

Anonymous said...

þeir eru með óvænta leikmenn svo sem nonna og tomma um að gera buffa þessa sveppi

kv. siggi

Anonymous said...

Já Sveppabuff er gott!

Anonymous said...

Þá er komið að því, stórleikur FH b og Lukkunar í kvöld í Kaplakrika.

FH og Lukkan hafa mæst einu sinni áður í Utandeildinni í handbolta og fór þá 33-31 fyrir FHb í hörkuleik. Þess má geta einnig að þessi lið hafa mæst óhemju oft í æfingaleikjum og hafa FH menn þar vinninginn (100% vinningshlutfall). Lukkumenn eru á sínu öðru ári í utandeildinni en FH er að spila enn eitt árið og eru þau orðin ansi mörg.

Staða liðana í deildinni
3. FH 4 4 0 0 139:117 22 8
12. Lukkan 6 0 0 6 188:222 -34 0

FH og Lukkan hafa bæði spilað við eftirfarin lið:
World Class
FH 35 á móti 30 (FH sigur)
Lukkan 37-39 (WC sigur)

Besti árangur:
FH
5. sæti í fyrra með breittu fyrirkomulagi á deildinni
Komust í 8 liða úrslitakeppni 2003. Enduðu þar í 3 sæti í sínum riðli.

Lukkan
Tók þátt í fyrra og hafa í gegnum tíðina aðeins unnið tvo leiki þ.e. í riðlakeppninni í fyrra.


SPÁ:
Held að það sé réttast að spá FH sigri í þessum leik enda sjálfstraustið mikið í herbúðum þeirra og hátt er stefnt. Lukkan er með lítið sem ekkert sjálfstraust en eru til alls vísir í svona nágrannaleik. Sýnd veið en ekki gefin.
Spá: 36-27 fyrir FH b.

Hermann Fannar said...

Ég er svo tæpur í svona tölfræði og skýrslan var ekki fyllt út. 26 - 37. Endaði þetta þannif :O

Anonymous said...

Já var það ekki. Allavega 11 marka sigur.

Kv.
GRS

Anonymous said...

smá stærðfræði

við höfum fengið á okkur að meðaltali 28,6 mörk og skorað 35,2 mörk að meðaltali.
smá fróðleikur
kv. Arnar

Anonymous said...

Hemmi, hvernig standa búningamálin?

Hermann Fannar said...

Vonast til að geta sótt þá í dag og farið með í merkingu.