Kæru félagar!
Í kvöld skiljast hafrarnir frá sauðunum.
Við erum ekki sauðir!
Við ætlum að sigra þetta HK lið og það sannfærandi!
Við erum með breiðan og jafnan hóp skipaðan bæði efnilegum guttum og mönnum sem eru svo hoknir af reynslu að það hálfa væri nóg.
Það sem skiptir máli er að við byrjum allir að hugsa um leikinn ekki seinna en núna!
...og ekkert múður!
Við þurfum að hugsa um VARNARVINNUNA!
Við þurfum að hugsa um að ÚTRÝMA feilsendingum!
Við þurfum að hugsa eins og SIGURVEGARAR!
Mætum tímanlega klukkan 20:20 og ekkert múður.
ÁFRAM FHb!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
ég skal gera allt þetta, en kemur einhver með kampavín??????
kv. Arnar
Ég skal halda utan um tölfræði í leiknum en er e-ð að frétta af dómaramálum?? Ef ekkert reddast þar þá ætlar löggan að bjóða sig fram til að dæma ef það fæst annar með honum. Spurning hvort hann reki sjálfan sig útaf?? En best væri að sjálfsögðu að fá sömu snillinga og síðast.
kv. Hilmar
Óli reddar þessum dómurum sínum. Hann er bara þannig gerður þessi elska. Einbeitum okkur af því sem við þurfum að gera til að vinna þennan leik. Vörnin skotheld, engar feilsendingar og við erum ósigrandi. Einfalt mál.
Svo er hægt að tala um áfengi þegar við erum búnir að vinna. Ekki fyrr.
Greinilegt að Raggi er búinn að æfa þessa ræðu í nokkur ár... alveg síðan við byrjuðum...
Kv.
GRS
Glæsilegt framtak hjá foringja vorum að mæta með eyðublað til að merkja inn feilsendingar, varin skot og þessháttar (ég reikna reyndar fastlega með að verða efstur í hvoru tveggja.) En þetta er gott aðhald og sá sem fer illa út úr tölfræðinni í kvöld er að öllum líkindum í djúpum skít. Um að gera að hafa það í huga.
Koma svo! Þið takið þetta. Ég kemst ekki í kvöld vegna glöggdrykkju.
...já og ekki gleyma að hita vel upp!!!
Hvernig væri að fá sænska upphitun???
kv. Hilmar
Það er víst mjög líklegt að 15 marka maðurinn, Mási, verði ekki með í kvöld sökum veikinda...
En það þýðir samt ekki að við getum verið eitthvað sigurvissari fyrir vikið!! Tökum þessa pappakassa!!
kv. Eiki
Já, setjum nú hausinn almennilega í gang og mætum tilbúnir til leiks
feður og bræður, mæður og systur við verðum að berjast
Kv
GRS
Post a Comment