Wednesday, December 12, 2007

Æfing í kvöld, leikur á föstudag!

Reynum að ná góðri mætingu í kvöld, skelfileg mæting á mánudag sem má ekki endurtaka sig. Við verðum að rífa okkur upp af rassgatinu og vinna HR gleðismellina á föstudag. Dómaramál eru mönnum ofarlega í huga enda á eftir að redda því eins og venjulega, ég talaði við Egil bróður hans Svenna en hann er því miður ekki laus. Óli þú ræðir við þína menn og reynum aftur Nóra.

Annars þá áttu búningarnir að koma úr merkingu í dag, en það náðist ekki þannig að morgundagurinn er stóri dagurinn.

Sjáumst í kvöld!

4 comments:

Anonymous said...

mæti í kvöld, afsakið að ég kom ekki á mánudag, konan þurfti að vinna lengur, kom upp á síðustu stundu, en kem í kvöld.
kv. Arnar

Beggi said...

sælir,
Það getur verið að litli bróðir sé til í að dæma á morgun - þó ekki allveg víst. Hann lætur mig vonandi vita í dag!

Anonymous said...

Tæki hann þá einhvern með sér eða þarf að redda öðrum?
kv. Eiki

Anonymous said...

ég er búinn að tala við minn mann og hann er núna á æfingu og ætlar að tala við einhverja stráka og hann lætur mig svo vita í kvöld eða á morgun