Wednesday, December 5, 2007

Æfing í kvöld, búningar og dómarar

Það er æfing í kvöld, væri fínt að fá góða mætingu svo við getum tekið gott spil og reynt þannig að taka smá hraða og gleði.

Varðandi búninga, Gatli og Fúsi eiga enn eftir að greiða.

Dómarar fyrir föstudag, Óli, getur þú tjekkað á dúddunum síðan seinast?

Sjáumst!

9 comments:

Anonymous said...

Mæti sprækur í kvöld, og stefni á að slátra nokkrum í vörninni.
kv. Hilmar

Anonymous said...

mæti auðvitað

kv siggi

Anonymous said...

Jæja, þá er komið að næsta stórleik vetrarins:
FHB vs. HKb

FHb og HK-b hafa att kappi nokkuð oft í Utandeildinni, eins og við þekkjum hana. Liðin mættust tvisvar á síðasta ári og svo hefur FHb mætt aðalliði HK í bikarkeppni HSÍ með stórg.. árangri. Liðin mættust tvisvar á síðasta tímabili og unnu sitthvorn leikinn í sitthvorum riðlinum (eða deild).

Staða liðana í deildinni:
3. FH 4 4 0 0 139:117 22 8 (ekki enn kominn leikur FH og Lukkunar sem FH vann)
4. HK 6 4 0 2 193:179 14 8

FH og HK hafa bæði spilað við eftirfarin lið:
ÍH
FH 35 á móti 30 (FH sigur)
HKb 19-24 (ÍH sigur)
World Class
FH 35-30 (FH sigur)
HKb 34-25 (HK sigur)
Lukkan
FH 37-26 (FH sigur)
HK 40-35 (HK sigur)

Innbyrðis viðureignir:
1 FH sigur og 1 HK sigur en báðir leikirnir voru á síðasta tímabili þrátt fyrir langan aldur þessara liða í utandeildinni.

Besti árangur:
FH
5. sæti í fyrra með breittu fyrirkomulagi á deildinni
Komust í 8 liða úrslitakeppni 2003. Enduðu þar í 3 sæti í sínum riðli.

HKb
Tvisvar í röð lent í 6. sæti þ.e. í fyrra og hitteðfyrra.


SPÁ:
Held að það sé réttast að spá FH sigri í þessum leik í MJÖG jöfnum og spennandi leik enda sjálfstraustið mikið í herbúðum þeirra og hátt er stefnt. HKb er engu að síður með gríðarlega sterkt lið og geta sigrað öll liðin í deildinni. Gamlar kempur hafa verið að sjást í liði þeirra og mega FHingar alls ekki fara kærulausir í þennan leik eins og þeir eiga til og verða allir að vera með hausinn fullkomlega í lagi í þessum leik.

Anonymous said...

Ég skal redda dómurum, spyr þá á eftir.

Anonymous said...

Kemst ekki í kvöld. Er að jafna mig í hnéinu eftir höggið sem ég fékk í ,,andlitið" í leiknum um daginn. (fékk hné í hnéskel :))

Kv.
GRS

Anonymous said...

mæti
kv. Arnar

Anonymous said...

Heyrði að Lukkan hefði tekið Hauka. Bíð eftir staðfestingu á því þar sem það hljóta að teljast ansi óvænt úrslit.
kv. Hilmar

Anonymous said...

kallinn minn tókum þá með 7

easy shit

Anonymous said...

Er eitthvað að frétta af dómaramálum fyrir kvöldið?
kv. Hilmar