Monday, December 10, 2007

FH vs HK

Fyrsta tapið á tímabilinu staðreynd í döprum leik af okkur hálfu. Flestir voru að spila illa. Vörnin var mjög slök og markvarslan eftir því. Þó voru nokkrir góðir kaflar en ansi stuttir. Sóknarlega vorum við þokkalegir en vantaði að slútta betur og smá skynsemi og þolinmæði. HK var að spila fast eins og við mátti búast og fór það í skapið á Adda sem lét finna fyrir sér og passaði vel uppá að hafa höggið vel sýnilegt fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitunga. Óli átti nokkrar góðar slummur en nokkur illa ígrunduð skot að auki. Hemmi var öflugur í fyrri hálfleik en sást ekki í þeim seinni. Annars voru eins og áður segir flest allir að spila illa og um að gera að girða sig í brók fyrir næsta leik á föstudaginn. Ég legg til að menn (og ég þar á meðal) mæti tímanlega á æfingar og við förum að taka almennilega á því á æfingum. Einnig verðum við að hafa gaman að því sem við erum að gera og mæta með brosið bæði á æfingar og í leiki. Annars er tölfræðin svona en hún er kannski ekki alveg 100% þar sem maður gleymdi sér aðeins vegna spennu í leiknum.

Raggi: 11 varin, 3 tapaðir boltar og 1 unninn bolti.
Fúsi: 2 varin.
Hemmi: 1/2, 1 stoðsending, tvö varin skot og 1 fiskað víti.
Höddi: 2/6, 2 stoðsendingar, 1 tapaður bolti, 1 fiskað víti.
Addi: 2/3, Rautt spjald.
Eiki: 2/2, 1 tapaður bolti.
Jói: 3/6.
Beggi: 1/4, 2 tapaðir boltar.
Óli: 10/17, 1 stoðsending, 1 tapaður bolti, 1 unninn bolti, 2 varin skot.
GAtli: 2/4, 2 tapaðir boltar.
Peter: 1/2, 1 unninn bolti.
Siggi: 7/11, 1 stoðsending, 3 tapaðir boltar, 2 unnir boltar.
Hilmar og Toby mættu en spiluðu ekki. Gauarnir stóðu sig með stakri prýði í dómgæslunni og fá þakkir fyrir að fórna sér fyrir liðið.

Vonast til að sjá sem flesta á æfingunni í kvöld og Hemmi mætir vonandi með ný og vellyktandi vesti.

kv. Hilmar

9 comments:

Anonymous said...

mæti í kvöld. Ætla að þegja, spila fair, og hafa skapið heima.
Get ekki verið með á föstudag, eigum við ekki að segja að ég verði í leikbanni. Biðst afsökunar á hegðun minni í leiknum. Vona að það fyrirgefist, í kvöld eða seinna.
kær kveðja Arnar "the hound"

Hermann Fannar said...

Vestin mæta, ég verð líklega með þeim. Annars eru búningarnir farnir í merkingu og nást þvi fyrir fyrir næsta leik.

Beggi said...

sælir félagar,

Það lítur ekki vel út með mætingu hjá mér í kvöld, því miður.
Konan í prófum og eitthvað ves með pössun fyrir stubbinn.

Þannig að ef ég kemst ekki í kveld þá mæti ég sprækur á miðvikudaginn.

kv,
Beggi

Anonymous said...

Er ekki pottþéttur í kvöld en reyni að mæta.

kv.
GRS

Anonymous said...

Er ekki spurning um að fara finna dómara fyrir föstudag?

Anonymous said...

Um að gera að byrja strax að leita. Ætlar Óli að tala við strákana?????? Og láta okkur svo vita hvernig það gengur

Kv.
GRS

Hilmar said...

Um að gera að byrja sem fyrst að leita. Treysti á að stórskyttan byrji á að tala við hvolpana og láti okkur svo vita stöðu mála svo við höfum tíma til að leita annað ef þeir komast ekki. Vonast til að sjá sem flesta á æfingunni í kvöld. Verð sjálfur svolítið seinn fyrir.

Anonymous said...

ég skal reyna að tala strákana til, ég kemst samt ekki á æfingu í kvöld, er nefnilega að fara að taka mitt seinasta próf á morgun

Anonymous said...

þessir skólakrakkar!!!!!!

kv. Arnar