Ég er bæði búinn að tala við Nóra og Egil (Svenbró) uppá að dæma leikinn á morgun. Egill er upptekinn í dómgæslu og Nóri er að fara að spila. Ég hef ekki fleiri ráð undir rifjunum á mér. En vandamálið er þekkt, okkur vantar nauðsynlega dómara. Einhverjar hugmyndir?
11 comments:
Kemst því miður ekki á morgun vegna vinnu :(.
kv.
GRS
ég er búinn að tala við einn strák sem ætlar að redda öðrum með sér, þeir eru árgerð 91 er það ekki í lagi? Þurfum bara að borga þeim aðeins fyrir svona 2000 kr. eitthvað þannig. Ég læt ykkur vita meira á morgun.
Er ekki málið að sá sem reddar dómara fær að taka vítin? Vona að þetta gangi upp hjá Óla að redda dómurum. Minni menn á að mæta 20:30 og með 500 kall í vasanum til að borga dómurunum. Verð sjálfur kannski seinn vegna vinnu.
kv. Hilmar
Nei, það gengur ekki að menn sem klúðra 2 vítum í sama leiknum séu alltaf að taka vítin ;)
kv.
GRS
Pæla samt í því, þessir strákar voru ekki fæddir þegar Sigga Beinteins og Grétar Örvars urðu í fjórða sæti Júróvísion með lagið Eitt lag enn (1990). Keppnin það ár var haldin í Zagreb. Lessan og loðböllur hlutu 124 stig ef ég man rétt. Hinsvegar voru þeir fæddir þegar Sigga og Grétar mættu aftur til leiks tveim árum síðar. En þá fluttu þau lagið Nei eða Já sem var talsvert lakara lag og lenti í 7. sæti.
Annars lýst mér vel á þá. Sjáumst á morgun!
Svo er smá peppræða hérna.
Smella hér
ég skal alveg taka það á mig að vera vítaskyttann í þessu liði ekkert mál, hahahahahha.
held ég hafi aldrei verið eins klár í leik og núna eftir að hafa hlustað á peppið...
en snilld að fá 91 strákana í þetta
ökklinn á mér er í rugli eftir síðustu æfingunni þannig að ég reikna síður með að mæta í leikinn.
Það vantar enn einn dómar. Einhver?
Hvað með Hauk Halta? Þar er fyrirtaks dómari á ferð og peningur í boði.
Post a Comment