Friday, November 2, 2007

Sigur í fyrsta leik!

Jú það fór eins og við óskuðum. Sigur í fyrsta leik og að þessu sinni var það Boltafélagið sem lág í valnum. Lokatölur voru 27 - 37 okkur í hag. Almennt var þetta ágætis leikur af okkar hálfu en við helyptum þeim á köflum óþarflega nærri okkur. Ef ég man rétt þá náðu þeir þó aldrei að komast yfir. Lið boltafélagsins var frekar þunnskipað en nokkrir góðir leikmenn á milli. Einn þeirra fékk rautt þegar hann "réðst" á Gumma Atla.

Byrjunarliðið var eftirfarandi.
Raggi datt í gír í seinni hálfleik og afsannaði regluna um að nær markið sé hans. Óli átti góðann leik og sérstaklega í vörninni þar sem hann djöflaðist í duglega í miðjuni. Jói var öruggur að vanda og skoraði nokkur góð mörk. Ég Hemmi var sveittur á línunni. Siggi sýndi góða takta og hélt boltanum á góðu floti. Haukur var í góðu formi og fór oft illa með lögfræðingana af Bifröst enda kann hann takið á lögfræðingum. Eiki átti einni flottan leik, mörg mörk skoruð úr hraðaupphlaupum eftir frábæra bolta frá Ragga.

Þess ber að geta að Eiki útnefndi sjálfan sig sem mann leiksins!

Höddi, Gaui, Peter, Beggi og Hilli spiluðu allir vel. Þó átti Peter atriði leiksins, annarsvegar tveggjahanda línusendingu aftur fyrir sig og trikk sem engin hafði séð áður, svokallað þrístökk án skrefa með adrenu. Skemmtilegt "töfrabragð sem endaði með því að hann fékk dæmd á sig skref. Sem var því miður bull, en ég skil dómarann vel, þetta leit mjög undarlega út.

Það sem við þurfum að laga fyrir næstu leiki er vörn nr. 1 - 2 og 3. Við áttum svosem fína kafla en á móti liðum með marga góða leikmenn væri þessi vörn ekki nægilega sterk. Þá fengum við líka á okkur alltof mörg mörk.

En heilt yfir góður sigur og nú er bara að halda áfram á sömu braut. Næsti leikur er á föstudag gegn Völsungi.

3 comments:

Anonymous said...

"Það sem við þurfum að laga fyrir næstu leiki er vörn nr. 1 - 2 og 3. Við áttum svosem fína kafla en á móti liðum með marga góða leikmenn væri þessi vörn ekki nægilega sterk. Þá fengum við líka á okkur alltof mörg mörk."

Er ekki ástæðan fyrir því að við fengum á okkur of mörg mörk, slök vörn???? ;)

Kv.
GRS

Anonymous said...

Þetta var algjör stemningssigur þrátt fyrir á köflum slappan varnarleik. Vippan mín og þrístökkið stóð samt upp úr.

Anonymous said...

Kemst ekki í kvöld vegna eymsla.
kv. Hilmar