Monday, November 26, 2007

FH - World Class

Á föstudaginn voru það World Class sem komu í heimsókn til okkar í Krikann. Sjálfur reiknaði ég með World Class sterkari en raun bar vitni. Þeir hafa misst nokkra sterka leikmenn síðan í fyrra og hafa veikst talsvert fyrir vikið. Leikurinn endaði 35 -30 eftir að World Class náði að klóra aðeins í bakkann undir lokin.

Við byrjuðum nokkuð vel og menn virtust tilbúnir í kvekindið. Frábær upphitun sem Siggi "Out sourcaði" í hendur Danna sem stóð sig vel. Svo má ekki gleyma ótrúlega velheppnuðum teygjuhring.

Það má ekki gleyma þætti Ragga í leiknum sem stóð sig frábærlega. Hann varði 18 bolta og átti 6 stoðsedningar.

Ég útnefndi Begga sem mann leiksins og fékk ágætar undirtektir svo ér reikna með að það standi. Siggi átti einnig mjög góðan leik sem og Óli.

Mörkin dreifðust svona á menn:
Hemmi - 2
Eiki - 3
Danni - 1
Höddi - 2 og 100 armbeygjur
Hilli - 1
Óli - 7
Beggi - 6
Siggi - 8
Gatli - 2
Jói - 3 (skuldar Hilla 1600 kall fyrir fittuna)

Aðrir á skýrslu:
Raggi
Fúsi
Toby

Það verður að taka það fram að dómararnir sem Óli geirnegldi, stóðu sig afar vel.

5 comments:

Anonymous said...

hvað er geirnegldi?

Anonymous said...

Reikna ekki með að komast á æfingar í vikunni vegna vinnu. Þú hendir svo inn reikningsnúmeri Hemmi svo menn geti lagt inn á þig fyrir búningunum. Reikna síðan með að Smáís lögsæki Jóa fyrir mína hönd.
kv. Hilmar

p.s. Gott ef Geirnegldi tengist ekki Geira Hall...

Anonymous said...

Kemst því miður ekki á æfingar í þessari viku. Látið mig vita ef ég á að mæta í leikinn á mánudag 3. des.
kv. Arnar

Anonymous said...

3.des strákar 3.des

lukkan

Anonymous said...

djöfull verður þessi klukka tekin í bakery hakery

lukka klukka krukka trukka(lessa)

skrítið hvað menn geta verið slappir að finna nafn á liðið sitt...lukkan?, þetta er eins og lið frá sambýli í færeyjum...enda er liðið næstum því jafn slappt og nafnið á því...

nei ég er að djóka þetta er flott nafn, þið standið ykkur eins og hnetur

kveðja

Stykkanovic