Jú, afsakið hvað þetta kemur seint, en einhver fróður maður sagði víst "Betra seint en aldrei".
Á föstudag, mættu Völsungar í heimsókn. Við vissum lítið sem ekkert um þetta lið og var undirbúningur eftir því. Losaralegur og menn almennt ekki með hugann við leikinn. Það er það fyrsta sem við verðum að laga fyrir næstu leiki. Ég útnefni Sigga hér með sem yfirmann upphitunarsviðs FH-b.
Heilt yfir var leikurinn slakur, vörnin ekki nógu góð og alltof mörg mistök í sókninni. Völsungur er með ágætis lið og vel skipulagt, en á góðum degi hefðum við átt að klára þetta stærra.
Dómara leiðindin hanga enþá yfir okkur og við verðum að finna farsæla lausn á því máli. Menn ná ekki að einbeita sér almennilega að leiknum þegar við sjálfir erum með flautuna uppí okkur, það er líka vanvirðing við andstæðinginn að bjóða ekki uppá almennilega lausn. Ég er ekki að segja að þeir sem fórnuðu sér í þetta hafi verið slakir, heldur er ég að kalla á alvöru úrræði. Hugmyndir?
En þar sem ég er með leikskýrsluna fyrir frman nefið á mér þá ákvað ég að hamra inn skoruð kvekindi.
Eiki - 3
Hemmi - 4
Hilli - 1
Höddi - 2
Gaui- 4
Siggi - 4
Jói - 1
Haukur - 1
Óli - 7
Beggi - 2
Gaui Kálfi - 5
Held þetta sé svona :)
Svo er það ÍH í Mýrinni á morgun föstudag. Leikurinn hefst klukkan 21.00, mæting 20.15. Tökum þá aðeins til í hausnum á okkur og mætum svoldið stemmdir í leikinn, Raggi ætlar að koma með 30.000 króna eðal freyðivín sem hann keypti á GoldFinger, og ég legg til að menn mæti með nokkur kvekindi.
Siggi, þú stjórnar upphitun!
Og eitt að lokum, þetta er loka útkall vegna búningapantana, ég held þett séu allir. Farið yfir listann og látið mig vita. Ég sendi þessa pöntun niðrí Adidas á morgun!
Toby - Medium
Hilli - XL
Haukur - Medium
Gaui Kálfi - XL
Beggi - Medium
Óli - Large
Danni - Large
Gaui - Medium
Eiki - Small
Siggi - Medium
Raggi - Medium
Hemmi - Medium
Jói - Medium
Gummi Atli - Large
Höddi - Large
Thursday, November 15, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Ég forfallast á föstudaginn en ég treysti því að þið rúllið þessu upp, það væri skömm að tapa fyrir ÍH.
Er ekki bara málið að menn mæti með 500-1000kjell á hvern heimaleik til að borga í dómara, þá yrði líklega auðvelt að fá einhverja til að flauta...
Annars mæti ég líklega aðeins seinna en 20:15 á morgun vegna leiks hjá meistaraflokknum, annars reddí bara
Er ekki mögulegt að ræða við einhverja 4-5 aðila í 2. og/eða 3. flokk og fá þá til að dæma. Borga þeim 2-3000 kall (hvorum dómara) og fá þá bara til að redda þessu. Hugsa að það séu pottþétt einhverjir sem eru til í að fá 2-3000 kr fyrir smá dómgæslu (1,5 klst. vinna). Þekkir ekki einhver gaura í þessum flokkum????????
(það verður að tala við gaurana og bjóða þeim þetta áður en menn segja ,,nei, þeir taka þessu ekki" eins og svo oft hefur verið sagt þegar hugmyndir eru lagðar á borð.
Kv.
GRS
Sammála, það er bara að finna dúdda sem eru líklegir til að gera þetta sómasamlega. Ég skal tala við Arnór.
Annars kem ég ekki á morgun, fastur í vinnuveislu, en þið takið þetta.
Veit að Addi Bjarna mætir galvaskur, hann getur tekið létt línuspor ef Danni þarf að pústa.
Hvenær er mæting í kvöld í leikinn?
kv. Arnar
uhhhh..... sé það núna, betra póst alla leið.
kv. Arnar
lesa vantaði núna
Ég verð einnig seinn útaf mfl. leiknum en mæti.
Það urðu skyndileg horföll hjá mér í gær og komst þar af leiðandi ekki í leikinn (Frekar svekkjandi).
Hvernig fór annars leikurinn?
27-33 fyrir FH
Kemst ekki í kvöld vegna vinnu (mánudagsæfingu)
Kv.
GRS
Post a Comment